Fréttir
FAS Vísindadagar
FAS Vísindadagar
Mynd FAS

06.11.2012 Fréttir

Vísindaverkefni kynnt í FAS

Síðustu þrjá daga hafa staðið yfir Vísindadagar í FAS. Nemendur unnu að þessu sinni í átta hópum að mismunandi verkefnum sem þó flest tengdust 25 ára afmæli skólans á einn eða annan máta.

Í hádeginu kynntu hóparnir afrakstur vinnu sinnar í teríunni í Nýheimum. Eftir það var gestum og gangandi boðið að ganga í stofur og skoða vinnu nemenda. Meðal þess sem mátti sjá var fréttaþáttur um afmæli skólans og gamansöm heimildamynd um upphaf skólans þar sem frjálslega var farið með staðreyndir. Einn hópur hafði samband við nemendur skólans síðustu fjögur ár og kannaði hvað þeir tóku sér fyrir hendur eftir veruna í FAS. Þá skoðaði einn hópur hvað var í fréttum árið sem skólinn var stofnaður. Tveir hópar höfðu heilsuskólaverkefnið að leiðarljósi þar sem annar hópurinn hljóp 25 kílómetra og hugaði að hentugri næringu fyrir langhlaup. Hinn hópurinn tók að sér að baka afmælisköku fyrir skólann þar sem hollusta var höfð að leiðarljósi. Að sjálfsögðu var öllum gestum boðið upp á að smakka á afmæliskökunum.

Nánar má skoða verkefni vísindaviku hér

www.fas.is

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 








Þetta vefsvæði byggir á Eplica