Fréttir
FAS
FAS
Mynd FAS

06.11.2012 Fréttir

Nemandi frá FAS á ólympíuleikum þýskunnar

Það hefur tíðkast um langt skeið að ýmsar námsgreinar sem kenndar eru í framhaldsskólum haldi sína ólympíuleika. Á tveggja ára fresti eru haldnir ólympíuleikar í þýsku.

Það er Goethe stofnunin sem hefur útibú víðs vegar um heim sem heldur leikana í samvinnu við þýskukennara. Leikarnir standa yfir í hálfan mánuð  og keppt er í þremur styrkleikaflokkum eftir því hversu lengi nemendur hafa lært tungumálið. Á leikunum er ekki síður mikilvægt að nemendur kynnist landi og þjóð og því er mikið um alls konar skoðunarferðir og heimsóknir. Að þessu sinni voru leikarnir haldnir í Frankfurt og stóðu frá 1. - 14. júlí. Langflest þátttökulönd borga fargjald fyrir tvo þátttakendur og einn fylgdarmann en þar sem Ísland er fámennt er einungis unnt að senda einn keppenda.

Um það bil sem skóla var að ljúka í vor kom boð frá Félagi þýskukennara um að senda Sigurð Ragnarsson á leikana að þessu sinni en hann uppfyllti öll skilyrði fyrir þátttöku. Hann hafði staðið sig vel í þýskunámi og orðið ofarlega í Þýskuþrautinni sem er samkeppni sem Félag þýskukennara stendur fyrir. Eftir nokkra umhugsun ákvað hann að þiggja boðið. Eina skilyrðið sem var sett fyrir þátttökunni var að hann myndi skrifa samantekt um ferðina fyrir Félag þýskukennara. Skrif Sigurðar um ferðina má lesa hér

www.fas.is

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 








Þetta vefsvæði byggir á Eplica