Fréttir
Garðyrkja
Garðyrkja

04.11.2012 Fréttir

Aðalfundur og fyrirlestur fyrir áhugafólk um garðyrkju

Þriðjudaginn 6. nóvemer kl.20, mun Kristinn H. Þorsteinsson fræðslu- og verkefnastjóri Garðyrkjufélagsins flytja erindi sem hann nefnir „Rót vandans“ á Hótel Höfn.
 
Kristinn mun meðal annars fjalla um nokkra helstu lykilþætti í ræktun, svo sem  jarðveg og jarðvegsgerð og þær kröfur sem plöntur gera til jarðvegs.  Þá verður kennt hvernig á að bera sig að við upptöku trjágróðurs til flutnings, gróðursetningar og áburðargjöf.

Aðgangseyrir 500 kr. fyrir félagsmenn í GÍ en 1000 kr. fyrir aðra. Það eru allir velkomnir og skérstaklega eru nýir félagar boðnir velkomnir. Fyrirlesturinn tekur um tvo tíma, boðið verður upp á kaffi í hléi.
 
Hafi félagsmenn áhuga á bókakaupum eða öðrum vörum hjá félaginu, þá er sjálfsagt mál að Kristinn komi með bækurnar til Hafnar til að spara burðagjöld.
Úrvalið af bókum sem fást hjá félaginu má sjá hér.

Aðalfundur Garðyrkjufélags Hornafjarðar (hét áður Þyrnirós) mun hefjast Kl. 19:30 á undan fræðslufundinum og mun þetta verða stuttur aðalfundur.  Félagsmenn eru hvattir til að fjölmenna á aðalfundinn.

Nánari upplýsingar á heimasíðu Garðyrkjufélagsins www.gardurinn.is og einnig geta áhugasamnir haft samband við Óðinn Eymunds í síma 899 1856.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 








Þetta vefsvæði byggir á Eplica