Forvarnarmál - eilífðarverkefni !!
Töluverð vakning hefur orðið á síðustu misserum í forvarnarmálum og heilsueflingu almennt.
Niðurstöður rannsókna undirstrika mikilvægi samveru fjölskyldunnar sem grunnþátt í forvörnum. Ekki er verið að vísa til þess að í gangi sé skemmtiprógram heldur er nándin málið! Hversdagslegar daglegar athafnir eins og að borða saman kvöldmat, horfa saman á sjónvarp, læra nálægt foreldrum sínum o.s. frv. Rannsóknir sýna einnig að ef börn og unglingar eru í skipulögðu íþrótta og tómstundastarfi eru minni líkur á að þau leiðist út í neyslu hvers kyns vímuefna.
Sveitarfélagið keypti á dögunum rannsóknarniðurstöður um hagi og líðan ungmenna í 8., 9. og 10. bekk árið 2012 í Grunnskóla Hornafjarðar. Niðurstöðurnar sýna fram á stöðuga jákvæða þróun hin síðari ár þegar litið er til reykinga, neyslu áfengis og ólöglegra vímugjafa meðal unglinga í grunnskóla.
Áfengisneysla

Mynd 1. Hlutfall nemenda í 10. bekk sem hafa orðið ölvaðir einhvern tíma um ævina, árin 1997 – 2012.
Samvera foreldra með unglingum sínum, útivistarreglur og eftirlit er þó minna hér en að meðaltali á landinu og þar eru strákarnir lausbeislaðri en stelpurnar. Eins má segja að viðhorf unglinganna til náms eftir grunnskóla sé umhugsunarvert og ekki í takt við þær áherslur í menntamálum að helst allir ljúki starfsmenntanámi eða öðru framhaldsskólanámi. Einnig er vert að veita athygli þeirri miklu aukningu sem verður í neyslu íslenskra ungmenna eftir að grunnskóla sleppir. Myndin hér að neðan sýnir niðurstöður fyrir landið allt.
Breytt neyslumynstur á 3 – 4 mánuðum. Landið allt 2010.
Daglegar reykingar, ölvun sl. 30 daga, hafa prófað hass og maríjíúna einu sinni á ævinni eða oftar

Mynd 2. Vímuefnaneysla nemenda í 10. bekk vorið 2010 og ungmenna eftir grunnskóla
Rannsóknarniðurstöðurnar í heild sinni má skoða í skýrslunni frá Rannsókn og greiningu á vefsíðu sveitarfélagsins.
Skóla-, íþrótta-, og tómstundanefnd er með drög að stefnu í æskulýðs-, íþrótta og tómstundamálum í kynningarferli. Drögin hafa verið send hagsmunaaðilum og eru aðgengileg á vef sveitarfélagsins. Íbúar eru hvattir til að kynna sér drögin og koma ábendingum til Ragnhildar Jónsdóttur fræðslustjóra á netfangið ragnhildurj@hornafjordur.is .
Forvarnastefna sveitarfélagsins verður tekin upp og endurskoðuð á næsta misseri. Í upphafi verður boðað til fundar þar með íbúum til að fá fram hugmyndir þeirra um aðgerðir og hefja vinnuna.
Ásgerður Gylfadóttir
Matthildur Ásmundardóttir
Kristján Guðnason
Ragnhildur Jónsdóttir
BB





Skrifa athugasemd