Fréttir
Forvarnardagurinn
Forvarnardagurinn
Mynd: FAS

30.10.2012 Fréttir

Forvarnardagurinn 31. október

Á morgun miðvikudag verður Forvarnardagurinn haldinn í áttunda sinn um allt land.

Undanfarin ár hefur áhersla verið lögð á samvinnu við grunnskólanemendur en nú fá framahaldsskólarnir í fyrsta sinn að halda daginn. Leiðarljós dagsins er að fá fram hugmyndir nemenda og tillögur um hvernig best sé að tryggja velferð þeirra sjálfra.

Í gær tóku nemendur í lífsleikni í FAS þátt í verkefninu þar sem þeir veltu því meðal annars fyrir sér hvers vegna ungt fólk byrjar að neyta áfengis og hvers vegna kjósa svo margir að gera það sumarið eftir að grunnskóla lýkur? Hvað er hægt að gera til að seinka því? Nemendur sendu svo niðurstöðurnar sínar til forsvarsmanna Forvarnardagsins og munu þær vera nýttar við gerð skýrslunnar „Þetta vilja þau - hugmyndir og tillögur framhaldsskólanema".

Upplýsingar um daginn má nálgast á www.forvarnardagur.is

www.fas.is

 

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 








Þetta vefsvæði byggir á Eplica