Vísindadagar framundan
Vísindadagar kynntir. Næsta miðvikudag hefjast Vísindadagar í FAS sem hafa verið árlegur viðburður á haustönn undanfarin ár.
Vísindadagar standa yfir í þrjá daga og þá leggja nemendur bækurnar til hliðar og velja sér verkefni eftir áhuga. Fyrsta daginn safna nemendur heimildum eða gögnum. Annan daginn er unnið úr gögnunum og þriðja daginn er svo afrakstur vinnunnar sýndur á opnu húsi í skólanum.
Verkefnin að þessu sinni tengjast mörg hver 25 ára afmæli skólans en einnig eru önnur verkefni tengd samfélaginu okkar. Þau verkefni sem eru í boði eru: 1. Eyjar, hólmar og sker í Hornafirði og Skarðsfirði. 2. Fyrrum nemendur FAS frá 2008 - 2012. 3. Ferðaþjónusta á Íslandi í 25 ár. 4. 25. kílómetrar. 5. Sindri í 25 ár. 6. Afmæliskaka á 25 ára afmæli skólans. 7. Sjónavarpsfrétt um afmæli skólans. 8. FAS 25 ára - fréttir í fjölmiðlum síðustu 5 árin. 9. Viðtöl við foreldra sem hafa verið í FAS. 10. Hlunnindi í Hornafirði. 11. Saga FAS í 25 ár. 12. Hvað var í fréttum í þjóðfélaginu fyrir 25 árum? 13. Leikþáttur um upphaf FAS. 14. Örnefni í Hornafirði.
Miðað er við að allt að 15 nemendur geti skráð sig í hvern hóp og hafa margir nú þegar valið sér verkefni. Þeir sem eiga eftir að skrá sig er bent á að gera það á skrifstofunni í dag eða á morgun.





Skrifa athugasemd