Endurskoðun aðalskipulags Sveitarfélagsins Hornafjarðar - lýsing verkefnis og matslýsing.
Bæjarstjórn Sveitafélagsins Hornafjarðar hefur ákveðið að fram fari endurskoðun á gildandi aðalskipulagi sveitafélagsins og samþykkti á fundi sínum þ. 4. okt. s.l. verkefnislýsingu sem hér með er auglýst til kynningar.

Kynning lýsingarinnar fer fram með þeim hætti að hún er birt hér á (pdf)
en liggur einnig frammi í Ráðhúsi sveitafélagsins Hafnarbraut 27, fyrir þá sem kjósa að nálgast lýsinguna með þeim hætti.
Upplýsingar eru einnig veittar hjá yfirmanni umhverfis og skipulags á sama stað.
Frestur til að koma athugasemdum og ábendingum á framfæri er til og með 3. des. n.k.
Þær skulu berast skriflega og stílaðar á Sveitafélagið Hornafjörður Hafnarbraut 27, 780 Höfn í Hornafirði.
Höfn 26. Október. 2012
F.h. Sveitarfélagsins Hornafjarðar,
Gunnlaugur Rúnar Sigurðsson
Yfirmaður umhverfis- og skipulags

Skrifa athugasemd