Fréttir
Framhaldsskólamót í Hornafjarðarmanna 2007
FAS (úr myndasafni)
Framhaldsskólamót í Hornafjarðarmanna 2007 @FAS

26.10.2012 Fréttir

Hagir og líðan ungmenna

Rannsóknarmiðstöðin Rannsóknir & greining hefur um árabil stundað rannsóknir á högum og líðan ungmenna og unnið náið með mennta- og menningarmálaráðuneytinu að framkvæmd rannsóknanna Ungt fólk.

Rannsóknirnar hafa verið gerðar í grunnskólum frá 5. til 10. bekk og í öllum árgöngum framhaldsskólanna. Með þessum rannsóknum hefur menntamálaráðuneytið tryggt að hægt sé að vinna úr haldgóðum og samanburðarhæfum gögnum um hagi barna og ungmenna fyrir fjölmarga aðila.

Sveitarfélagið keypti á dögunum rannsóknarniðurstöður um hagi og líðan ungmenna í 8., 9. og 10. bekk árið 2012 í Grunnskóla Hornafjarðar. Niðurstöðurnar sýna fram á stöðuga jákvæða þróun hin síðari ár þegar litið er til reykinga, neyslu áfengis og ólöglegra vímugjafa meðal unglinga í grunnskóla.

Sjá greinina alla (pdf)

Rannsóknarniðurstöður (pdf)

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 








Þetta vefsvæði byggir á Eplica