Fréttir
Hornafjarðarmáni
Hornafjarðarmáni
Myndir væntanlegar

26.10.2012 Fréttir

Samfélagssjóður stofnaður


Rauði krossinn á Hornafirði, Lionsklúbbur Hornafjarðar og Lionsklúbburinn Kolgríma hafa stofnað samfélagssjóð sem  er ætlað að styrkja einstaklinga í heimabyggð. Einnig er sjóðnum heimilt að styrkja félagasamtök eða verkefni sem miða að því að stykja samfélagið hér í sveitarfélaginu. Í reglum sjóðsins segir orðrétt: "Tilgangur sjóðsins er fyrst og fremst að bregðast við atvikum sem kalla á fjárútlát þeirra aðila sem ekki hafa burði til að standa undir þeim tímabundið" Komin er tenging inni á heimasíðu Hornafjarðar á netinu http://www.rikivatnajokuls.is/samfelagssjodur þar sem verður hægt að sjá nánar um reglur sjóðsins og einnig hægt að ná í umsóknareyðublað. Útfyllta umsókn er svo hægt að senda í tölvupósti beint á netfangið samfelagssjodur@hornafjordur.is eða í hefðbundnum bréfpósti á Bæjarskrifstofur Hornafjarðar. Á Bæjarskrifstofunum er líka hægt að ná sér í umsóknareyðublað og reglur sjóðsins.

Með samfélagskveðjum.
Lionsklúbbur Hornafjarðar
Lionsklúbburinn Kolgríma
Rauði krossinn á Hornafirði

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 








Þetta vefsvæði byggir á Eplica