Fréttir
Reykjavik
Reykjavik
Reykjavík, höfuðborg allra landsmanna? (Mynd: Stjórnarráð)

22.10.2012 Fréttir

Reykjavík, höfuðborg allra landsmanna?

Útilit er fyrir að flugferðum innanlands muni fækka um allt að 40% á einstökum flugleiðum ef gildandi deiliskipulag fyrir Vatnsmýrina verður að veruleika.

Þar er gert ráð fyrir því að umsvif á Reykjavíkurflugvelli dragist verulega saman frá og með árinu 2016, þegar önnur flugbrautin mun víkja, en flugvöllurinn verði á brott árið 2024. Þetta eru slæm tíðindi fyrir fólk sem býr úti á landi, enda munu þessar breytingar í raun gera landsbyggðina eins og hún leggur sig afskekktari en ella og kemur til með að bitna mjög bæði á atvinnu- og menningarlífi.

Áhrif flutnings á megingátt innanlandsflugsins til Keflavíkur eru rakin ýtarlega í nýrri skýrslu sem unnin var af ráðgjafafyrirtækinu KPMG. Þar er á það bent að ferðalagið til Reykjavíkur með innanlandsflugi muni að jafnaði lengjast um helming, en í sumum tilfellum enn meira eða allt að því 70%, með tilheyrandi kostnaði. Þetta hefur það í för með sér að færri sjá sér hag í því að fara flugleiðina til höfuðborgarinnar. Margir munu velja annan ferðamáta og einhverjir munu einfaldlega sitja heima. Fram kemur að 85% aðspurðra telja að þeir myndu sjaldnar fljúga til Reykjavíkur en þeir gera nú.

Við svo búið bresta forsendur fyrir innanlandsflugi í núverandi mynd. Fækkun farþega leiðir til lægri tíðni flugferða og raunveruleg hætta er á við því að ákveðnar flugleiðir muni ekki standa undir sér rekstrarlega. Útreikningar KPMG benda til þess á flugleiðunum til Ísafjarðar, Hafnar í Hornafirði og Vestmannaeyja komi ekki til með að bera nema eitt flug daglega miðað við áætlaða fækkun farþega. En til þess að flugleið standi undir sér frá viðskiptalegu sjónarhorni þarf hins vegar að vera hægt að fljúga tvisvar fram og til baka dag hvern, því að öðrum kosti hverfur möguleikinn á dagsferðum, sem aftur verður til þess að flugfarþegum fækkar enn frekar.

Það liggur í augum uppi að svo stórfelldur samdráttur í framboði og innanlandsflugi mun hafa neikvæði áhrif á lífskjör fólks á landsbyggðinni. Hún mun skerða samkeppnishæfni fyrirtækja og byggðarlaga. Fjöldi fyrirtækja á landsbyggðinni, einkum stærri og meðalstór fyrirtæki, treysta mjög á greiðar flugsamgöngur til Reykjavíkur, enda hefur margvísleg sérhæfð þjónusta byggst upp í höfuðstaðnum. Með flutningi á gátt innanlandsflugs til Keflavíkur kemur rekstrarkostnaður þessara fyrirtækja til með að aukast til muna og líklegt er að starfsmenn yrðu lengur frá vinnu en ella, sérstaklega ef gera þarf ráð fyrir næturgistingu. Verri samkeppnisstaða getur leitt til þess að fyrirtæki flytji starfsemi til Reykjavíkur. Við það færast störf, í mörgum tilfellum hátekjustörf, frá landsbyggðinni og atvinnulíf verður einhæfara. Aukheldur verður erfiðara fyrir þá sem vilja búa úti á landi að sækja vinnu til Reykjavíkur.

Greiðar flugsamgöngur eru líka forsenda fyrir öflugu mennta- og menningarstarfi. Þær gera til dæmis fræðimönnum, sem jafnan starfa á höfuðborgarsvæðinu, kleift að sinna stundakennslu eða taka þátt í vísindastarfi á landsbyggðinni. Eins er þýðingarmikið fyrir leikhús og aðra listastarfsemi að geta höfðað til menningarunnenda af höfuðborgarsvæðinu.

Þá er ekki síður mikilvægt fyrir íbúa vítt og breytt um landið að geta með góðu móti sótt þjónustu, námskeið eða menningu til höfuðborgarinnar, þar sem starfræktar eru menningarstofnanir sem eiga að þjóna öllum landsmönnum, Þjóðleikhús, Íslenska óperan, Listasafn Íslands o.s.frv. Reykjavík er höfuðborg allra landsmanna. En ef borgin á að standa undir nafni verðu hún að vera aðgengileg.

Gott aðgengi að menningu, menntun og þjónustu er grunnþáttur sem hefur áhrif á búsetuval fólks. Verri samgöngur skapa tilfinningu fyrir einangrun og draga úr lífsgæðum.

 

Greinahöfundar eru eftirfarandi bæjarstjórar: Hjalti Þór Vignisson Hornarfjörður, Elliði Vignisson Vestmannaeyjum, Ásthildur Sturludóttur Veturbyggð, Björn Ingimarsson Fljótsdalshéraði, Daníel Jakobsson Ísafjarðarbæ, Eiríkur Bj. Björgvinsson Akureyri og Páll B. Guðmundsson Fjarðarbyggð

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 








Þetta vefsvæði byggir á Eplica