Ný stefna í íþrótta,- æskulýðs- og tómstundamálum.
Skóla,- íþrótta- og tómstundanefnd hefur sent frá sér drög að stefnu í íþrótta,- æskulýðs- og tómstundamálum fyrir Sveitarfélagið Hornafjörð.
Drögin eru send öllum nefndum sveitarfélagsins til umsagnar, öllum hagsmunaaðilum s.s. ungmenna- og íþróttafélögum, skólum og öðrum sem hagsmuna hafa að gæta.
Vakin er athygli á því að drögin eru einnig aðgengileg á vef sveitarfélagsins hornafjordur.is/stjornsysla og eru íbúar hvattir til að kynna sér þau og segja sína skoðun.
Tekið er við umsögnum, ábendingum og athugasemdum fram til þriðjudagsins 6. nóvember n.k. á netfangið: ragnhildurj@hornafjordur.is
BB





Skrifa athugasemd