Fréttir
Leikskólabörn
Leikskólabörn
leikskólinn Lönguhólar

16.10.2012 Fréttir

Þjóðardagar á Lönguhólum


Þessa dagana eru þjóðardagar á leikskólanum Lönguhólum, þar kynna börnin ásamt foreldrum sínum heimaland sitt. Engin kynning er eins þar sem foreldar og börn fá að velja sjálf hvernig þau standa að kynningunni. Sem dæmi, þá annað hvort lesa þau syngja, sýna fatnað, myndir, gefa starfsfólki og börnum að smakka sinn heimamat eða það sem hver vill kynna frá sínu landi.

Börn sem eru í leikskólanum í dag koma frá 9 löndum það er Bosnía, Filippseyjar, Litháen, Marokkó, Danmörk, Perú, Pólland, Senegal og ísland. Þessar kynningar eru skemmtileg viðbót við leikskólastarfið og auðga menningarlíf Hornafjarðar.

BB


Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 








Þetta vefsvæði byggir á Eplica