Fréttir
Stafaganga í Almannaskarði
Almannaskarð
Stafaganga í Almannaskarði (úr myndasafni)

10.10.2012 Fréttir

Hlaup í Skarðið á sunnudag

Sunnudaginn 14.október kl 13:00 ætlum við að standa fyrir viðburðinum Hlaup í Skarðið en þetta verður í 3ja sinn sem við Hlaupum í Skarðið.
 
Eins og nafnið gefur til kynna þá fer viðburðurinn fram í og við Almannaskarð. Hlaup í Skarðið er ekki hugsað sem eiginleg keppni, heldur frekar eins og Kvennahlaupið en þar fara allir á sínum hraða, þ.e. sumir hlaupa en aðrir ganga. Tekinn verður tími á hverjum þátttakanda þannig að í lok „hlaupsins“ fá allir þátttakendur viðurkenningarskjal með skráðum tíma.

Boðið verður upp á tvær vegalengdir. Upp Skarðið og niður aftur eða þá upp Skarðið, niður Skarðsdalinn og svo sömu leið til baka. Þátttökugjald er kr 500.- pr einstakling en hver fjölskylda greiðir aldrei meira en  kr 1.500.-
Hlaup í Skarðið er kjörinn viðburður fyrir fjölskylduna til að eiga saman skemmtilega stund í góðum félagsskap.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 








Þetta vefsvæði byggir á Eplica