Menntamálaráðherra heimsækir FAS
Á miðvikudag í síðustu viku kom menntamálaráðherra Katrín Jakobsdóttir í heimsókn í FAS ásamt Jóni Torfa Jónssyni og Guðna Tómassyni.
Tilefni heimsóknarinnar var 25 ára afmæli skólans og 10 ára afmæli Nýheima.Ráðherra hóf daginn með því að spjalla við starfsmannahópinn og spyrja um skólastarfið. Sérstaklega barst talið að skipulagi á félagslífi nemenda í FAS og lýstu gestirnir hrifningu sinni. Því næst var farið í skólastofur, skólastarfið skoðað og rætt við nemendur. Að þessu loknu var gengið um Nýheima og þeir kynntir fyrir ráðherra.
Í hádeginu sátu forstöðumenn stofnana í Nýheimum og bæjarstjóri fund með ráðherra og gestum þar sem fjallað var um framtíð Nýheima. Þar á eftir var farið í Svavarssafn og í Vöruhúsið þar sem áform um uppbyggingu verk- og listgreina voru kynnt.
Hápunktur heimsóknarinnar var svo afmælisráðstefna FAS og Nýheima um mennta- og menningarmál á svæðinu. Í upphafi ráðstefnunnar var undirrituð viljayfirlýsing um eflingu á starfi Nýheima á sviði menningar, menntunar, rannsókna og nýsköpunar. Það eru bæði ráðuneyti atvinnumála og nýsköpunar og ráðuneyti mennta- og menningarmála sem standa að viljayfirlýsingunni ásamt heimamönnum. Gert er ráð fyrir að vinnu um mótun um stefnu til næstu 10 ára verði lokið í desember næst komandi.
Við þökkum ráðherra fyrir komuna og að gera þennan dag eftirminnilegan í sögu skólans.
www.fas.is





Skrifa athugasemd