Fréttir
Sigurður Guðmundsson

10.10.2012 Fréttir

Sigurður Guðmundsson ráðinn forstöðumaður Hornafjarðarhafnar

Sigurður Guðmundsson hafnsögumaður hefur verið ráðinn forstöðumaður Hornafjarðarhafnar. Hann mun hefja störf sem forstöðumaður Hornarfjarðarhafnar 1. nóvember en þá lætur Sigfús Harðarson af störfum sem yfirhafnsögumaður en starfar áfram við hafnsögu fyrir Hornafjarðarhöfn.  Um leið og Sigurður er boðinn velkominn til starfa sem yfirmaður hafnarinnar er Sigfúsi færðar bestu þakkir fyrir farsælt áratugalangt starf sem yfirhafnsögumaður.
Sigurður hefur starfað við Hornarfjarðarhöfn um tíma fyrst sem afleysingamaður en frá árinu 2010 sem hafnsögumaður. Hann hefur einnig reynslu af sjómennsku og hefur verið til sjós bæði sem háseti, stýrimaður og skipstjóri. Sigurður lauk réttindanámi í Stýrimannaskólanum og stundar nú nám á vélstjórnarstigi A frá FAS ásamt ýmsum öðrum námskeiðum sem hann hefur sótt í FAS. Þá hefur Sigurður einnig hafnsögumannaréttindi og setið námskeið í verndun hafna.
Sigurður er virkur í félagsmálum, er formaður í líknarnefnd Lionsklúbbs Hornafjarðar, stjórnarmaður í Björgunarfélagi Hornafjarðar og er einn af fjórum í stjórn samfélagssjóðs Hornafjarðar.


Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 








Þetta vefsvæði byggir á Eplica