Mikið um að vera hjá Frjálsíþróttadeild Sindra
Frjálsíþróttadeild Sindra stefnir að því að fara með hóp á Gautaborgarleikana 2013 en það er stórt mót sem haldið er í Gautaborg í Svíþjóð í byrjun júlí.
Frjálsíþróttaæfingarnar eru byrjaðar að nýju og er æft á miðvikudögum kl 19:30, annan hvern föstudagsmorgun kl 6:30 og svo annan hvern laugardag kl. 13:00. Stefnt er að því að vera með stóran og góðan hóp á Unglingalandsmótinu sem haldið verður hér á Hornafirði um næstu verslunarmannahelgi og því er ekki seinna vænna en að byrja að æfa.
Nú í sumar fóru iðkendur frá deildinni á nokkur mót og stóðu sig með mikilli prýði. Á MÍ 11-14 ára sem haldið var á Laugardalsvellinum um mánaðarmótin júní-júlí fóru 7 keppendur héðan og þau komu heim með nokkra verðlaunapeninga en allir stóðu sig mjög vel og bættu sín persónulegu met. Unglingalandsmótið var haldið á Selfossi um síðustu verslunarmannahelgi kepptu nokkrir frá Sindra og við fengum þó nokkra verðlaunapeninga. MÍ 15-22ja var svo haldið hér á Sindravöllum í ágúst og þar var okkar fólk á heimavelli. Deildin átti oft keppendur á palli og gleðin var mikil hjá Sindrafólki. Eftir mótið fékk Frjálsíþróttadeild Sindra mikið hrós fyrir góða umgerð og hversu vel var að þessu móti staðið.
Nýjustu fréttir eru þær að Sveinbjörg Zophoníasardóttir hefur verið valin inn í ólympíuhópinn 2016 og óskar Frjálsíþróttadeild Sindra henni innilega til hamingju og við munum væntanlega öll fylgjast spennt með árangri hennar næstu árin.
Sunnudaginn 14.október kl. 13:00 stendur deildin fyrir viðburðinum Hlaup í Skarðið sem við segjum nánar frá næstu daga.





Skrifa athugasemd