Á leið til Kaupmannahafnar
Um miðjan nóvember ætla nemendur í DAN303 að fara til Danmerkur ásamt kennaranum sínum. Ferðin verður frá fimmtudegi til sunnudags og munu þau eyða tímanum í Kaupmannahöfn.
Ferðin er fyrst og fremst náms- og kynnisferð og munu nemendur halda dagbók og gera verkefni um ferðina.
Tilgangur ferðarinnar er að kynnast menningu og tungu Dana eins og kostur er í stuttri heimsókn. Hópurinn ætlar að heimsækja nokkur söfn og frægar byggingar t.d. Rosenborg og Christiansborg og Thorvaldsens Museet svo dæmi séu tekin. Einnig er ætlunin að kynna sér sögu Íslendinga í Kaupmannahöfn fyrr á öldum t.d. með því að kíkja í „Jórukleif" og fleiri merka staði. Kennarinn er að sjálfsögðu Guðmundur Ingi Sigbjörnsson og er það hann sem hefur séð um að skipuleggja þessa ferð. Krakkarnir hafa haldið tvær fjáraflanir hingað til og stefna að fleiri á komandi vikum. Það verður spennandi að fá að heyra meira frá ferðalagi þeirra.





Skrifa athugasemd