Fréttir
Flugfélagið Ernir
Flugfélagið Ernir
(Úr myndasafni)

27.09.2012 Fréttir

Flug til Hornafjarðar í hættu ef  innanlandsflug flyst til Keflavíkur.

Sveitarfélög á landsbyggðinni létu vinna fyrir sig skýrslu um áhrif flugvallar í Reykjavík og færslu hans til Keflavíkur. Í skýrslunni segir að ef innanlandsflug flyst frá Reykjavík leggist flug til Hornafjarðar nánast af og öryggi sjúklinga stefnt í hættu vegna aukinnar fjarlægðar í sjúkrahúsin í Reykjavík.

Skýrslan er unnin af KPMG og byggir á viðtölum við fjölmarga aðila til að fá ólík sjónarmið. Þar kemur fram að ef þessar breytingar á innanlandsflugi verði að veruleika þá er talið að fækkun flugfarþega verði allt að 40%. Fækkun farþega stafar af lengri ferðamáta, fólk velur sér að fara frekar með bílum og þá hækki verð fargjalda í kjölfarið.

Fækkun flugfarþega verður of mikil og nýting sæta ekki vera nægjanleg til að flug geti haldið áfram til Hornafjarðar og fleiri staða á landsbyggðinni.  Verð á farmiðum gæti hækkað töluvert, sem hefur aftur áhrif á farþegafjöldann. Einnig kemur fram að hægt sé að halda áfram með flug til Hornafjarðar ef það verði ríkistyrkt, en þá geti flugferðum fækkað til að halda ásættanlegri sætanýtingu. Þá kemur fram að slíkt geti haft þau neikvæðu áhrif að endanlegur farþegafjöldi verði ekki nægjanlegur til að bera flugleiðina.

Sýnt er fram á að sjúkraflug verði ekki jafn öruggt og það er í dag ef flugvöllur í Vatnsmýrinni leggst af. Þá þurfi að gera ráð fyrir slíkri þjónustu í Keflavík og jafnvel gera ráð fyrir að byggja nýtt hátæknisjúkrahús nær Keflavík til að auka öryggi landsbyggðarinnar.

Þá er sýnt fram á að öll fagleg þjónusta við landsbyggðina geti verið í hættu og erfiðara verði að fá fagfólk af höfuðborgarsvæðinu í ýmsar stytti ferðir eins og gestakennslu, fyrirlestra og ráðstefnur vegna aukins kostnaðar. Einnig er hætta á hækkun á rekstarkostnaði hjá fyrirtækjum sem nýta sér ýmsa sérfræðiþjónustu á höfuðborgarsvæðinu sem gæti leitt til fækkunar fyrirtækja á landsbyggðinni.

Óvissa ríkir um ferðaþjónustu þar sem Keflavíkurflugvöllur gæti skapað tækifæri til að flytja ferðamenn beint á landsbyggðina. En bent er á að flestir ferðamenn sæki í höfuðborgarsvæðið og gætu því ýmsar dagsferðir með flugi þaðan lagst af.

Þrátt fyrir að flugfarþegum hafi fjölgað um Hornarfjarðarflugvöll síðust ár þá er sýnt fram á að farþegum fækki ef flutningur flugvallar verði að veruleika. Landbyggðin verði afskekktari erfiðara verður að sækja menningu og aðra þjónustu, heilbrigðisþjónusta verði enn dýrari og getur haft áhrif á búsetuval fólks til lengri tíma litið.

 

 

 

 

BB

 


Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 








Þetta vefsvæði byggir á Eplica