Fjallamennskunemar í æfingabúðum
Þriðjudaginn 11. september héldu nemendur í fjallamennsku að Hnappavallahömrum ásamt leiðbeinendum í fyrstu æfingaferð vetrarins. Ferðin tók alls tíu daga og var slegið upp tjöldum í nánd við klettana.
Aðstæður til að æfa klifur í klettunum eru þar mjög góðar. Þar hafa áhugamenn um klifur byggt skála yfir gamla tóft sem nú nýttist vel sem kennslustofa.
Nemendur lærðu undirstöðuatriði klettaklifurs, björgunarkerfi, þverun straumvatna og undirstöðu rötunar og notkun á áttavita. Fyrri hluti dagsins var nýttur í bóklega kennslu en seinni hlutanum var varið til verklegra æfinga eða allt þangað til að pottaglamur og gufustrókar úr prímusum undirbjuggu girnilega og skemmtilega stemmingu. Eftir kvöldmat fór mestur tími í æfingar á því sem kennt var fyrr um daginn og/eða til klettaklifurs að kvöldlagi.
Veðurofsi í byrjun námskeiðsins hægði aðeins á hópnum og nemendur þurftu að takast á við ekta íslenskar aðstæður. Það er ekki síður mikilvægt að vita að það geti verið allra veðra von á Íslandi.
Myndir úr ferðinni má sjá hér
Frábær ferð með frábæru fólki, Takk fyrir öllsömul!
Ragnar Þór Þrastarson
Fjallamennskusviði FAS
www.fas.is





Skrifa athugasemd