Fréttir
Challander 604
Challander 604
Í flugtaki

25.09.2012 Fréttir

Vilja millilandaflug frá Hornafirði

Fjórir þingmenn hafa lagt fram tillögu til þingsályktunar um að innanríkisráðherra verði falið að „tryggja að á Hornafjarðarflugvelli verði nægjanlegur búnaður og aðstaða til að hægt sé að sinna þaðan millilandaflugi með minni farþegaflugvélum og vélum í ferjuflugi sem núna hafa heimild til þess að fljúga um völlinn,“ eins og segir í henni.

Flutningsmaður er Unnur Brá Konráðsdóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, en meðflutningsmenn eru Sigurður Ingi Jóhannsson, þingmaður Framsóknarflokksins, Ragnheiður Elín Árnadóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, og Atli Gíslason sem situr utan flokka. Öll eru þau þingmenn Suðurkjördæmis.

„Hornafjarðarflugvöllur gegnir mikilvægu hlutverki í samgöngukerfi landsins. Mikilvægt er að tryggja áframhaldandi rekstur og uppbyggingu á svæðinu til hagsbóta fyrir heimamenn og atvinnulífið. Ljóst er að staðsetning vallarins býður upp á mikla möguleika til aukinnar umferðar ferðamanna, sérstaklega í kjölfar tilkomu Vatnajökulsþjóðgarðs,“ segir í greinargerð með tillögunni.

Þingsályktunartillagan í heild 

Frétt mbl.is

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 








Þetta vefsvæði byggir á Eplica