Fréttir
Útsvar á RUV
Útsvar á RUV
Regína Hreinsdóttir, Soffía Auður Birgisdóttir og Jóna Benný Kristjánsdóttir.

16.09.2012 Fréttir

Hornafjörður vann með 69 stig í Útsvari

Eftir harða keppni í Útsvari á RUV í gærkvöldi sigruðu Hornfirðingarnir reynsluboltana frá Dalvík með 13 stiga mun.

Fyrir hönd Hornafjarðar kepptu þær Regína Hreinsdóttir þjóðvarðsvörður í Skaftafelli, Soffía Auður Birgisdóttir bókmenntafræðingur og Jóna Benný Kristjánsdóttir lögfræðingur. 

Keppnin var æsispennandi fram að síðustu spurningu en bæði liðin voru nokkuð jöfn í bjölluspurningum og vísbendingaspurningum.  Þegar kom að leiknum var staðan 15 stig á móti  11 fyrir Dalvíkurbyggð.  Bæði lið stóðu sig vel í leiknum, Dalvíkurbyggð fékk 24 stig en Hornafjörður 27 stig og var því staðan fyrir flokkaspurningarnar 39 – 38 fyrir Dalvíkurbyggð.  Í flokkaspurningunum skiptust á skin og skúrir þar sem bæði lið voru að stela svarréttinum hvort frá öðru.  Þegar kom að síðasta hluta þáttarins, stóru spurningunum, var staðan orðin 54 – 41 Hornafirði í vil.  Í stóru spurningunum vönduðust leikar þegar símavinir beggja liða flöskuðu á að gefa rétt svör, en hvort lið svaraði einni 15 stiga spurningu rétt.  Í lokin var það Hornafjörður sem bar sigur á hólmi með 69 stig á móti 56 eins og fyrr segir.

Næsta keppni Hornfirðinga verður eftir nokkra mánuði.

Til hamingju Hornafirðingar

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 








Þetta vefsvæði byggir á Eplica