Afmælisveisla í FAS
Síðasta föstudag var þess minnst að aldarfjórðungur er síðan Framhaldsskólinn í Austur-Skaftafellssýslu var settur í fyrsta sinn.
Þá fór skólasetningin fram í mötuneyti Nesjaskóla þar sem skólinn var til húsa fyrstu fimmtán árin. Í dag var hinsvegar afmælisveisla í Nýheimum þar sem skólinn hefur verið til húsa síðan byggingin var tekin í notkun 2002.
Miðrými Nýheima var skreytt í tilefni dagsins og bæjarbúum boðið upp á súpu og brauð. Zophonías Torfason fyrsti skólameistari FAS stýrði afmælisveislunni og nemendur léku tónlist. Að lokum var frumfluttur skólasöngur FAS en efnt var til samkeppni um einkennislag fyrir skólann. Lagið er eftir Grétar og Karl Örvarssyni og textinn eftir Karl Kristensen. Hér má hlýða á lagið.
Ýmsir fleiri viðburðir eru á döfinni í tilefni afmælisins, m.a. afmælisráðstefna FAS og Nýheima 3. október n.k. og vísindadagar í byrjun nóvember verða helgaðir 25 ára afmæli skólans.





Skrifa athugasemd