Fréttir
FAS matreiðsla
FAS matreiðsla
Mynd:fas.is

13.09.2012 Fréttir

Kínverskt matreiðslunámskeið í FAS

Föstudaginn 7. september síðastliðinn hélt Viðburðaklúbbur NemFAS kínverskt matreiðslunámskeið. Alls tóku 9 stelpur þátt sem er mjög góð þátttaka, því aðeins var pláss fyrir 10. Auri okkar sá um námskeiðið og stóð hún sig mjög vel.

Matreitt var eftir átta uppskriftum frá Shanghai og Peking og voru það bakaður kjúklingur í hoisin sósu, nautakjöts- og broccoli réttur, djúpsteiktar rækjur í súrsætri sósu, steiktar grænmetisnúðlur, steikt hrísgrjón í grænmeti, kínverskt kartöflusalat og rauðrófu- og eplasalat. Allskyns aðferðir voru notaðar s.s. að sjóða, baka, steikja og djúpsteikja. Það voru notaðar yfir 15 tegundir af grænmeti og yfir 10 tegundir af jurtum og kryddum. Einnig var passað upp á að ofelda ekki grænmetið til að það myndi ekki missa vítamínin og næringargildið. Matarborðið var skreytt með alls konar lituðum blómum, kertum og lömpum til þess að gefa þessu fallegan kínverskan stíl.
Tjörvi var aðalgesturinn okkar og tók Siggerður vel á móti honum í kínverskum fötum og með kínverskum sið og sagði „nihao” sem þýðir „halló”. Þrír svangir gestir bættust svo við og voru þeir að koma beint af fótboltaæfingu og gátu auðvitað ekki misst af þessum ljúffenga mat. Þetta gekk allt upp eins og vonast var til og þökkum við Auri fyrir mjög skemmtilegt námskeið. Stefnt er að því að halda alla vega eitt námskeið í viðbót en ekki hefur verið tekin ákvörðun um það hvenær það verður eða hvernig mat á að elda.
                                                                                                                                          
Dóra Björg Björnsdóttir, formaður Viðburðaklúbbs FAS.

www.fas.is

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 








Þetta vefsvæði byggir á Eplica