Fréttir
Veglínur skoðaðar
Veglínur skoðaðar
Hjalti Þór Vignsson bæjarstjóri, Ásgerður Gylfadóttir, forseti bæjarstjórnar, og Reynir Arnarson, formaður bæjarráðs funda með innanríkisráðherra og fylgdarli og vegamálastjóra. (Mynd: Innanríkisráðuneytið)
Mynd 2 af 3
1 2 3

12.09.2012 Fréttir

Nýjar veglínur Hringvegarins við Höfn til skoðunar

Nýjar veglínur Hringvegarins gegnum bæina Höfn og Vík hafa verið til skoðunar hjá samgönguyfirvöldum og Sveitarfélaginu Hornafirði og Mýrdalshreppi undanfarin misseri.

Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra sat í síðustu viku ásamt Hreini Haraldssyni vegamálastjóra fundi með fulltrúum sveitarfélaganna þar sem þeir kynntu ráðherra sjónarmið sín varðandi hugsanlegar breytingar og framkvæmdir.


Fund í Sveitarfélaginu Hornafirði sátu Hjalti Þór Vignsson bæjarstjóri, Ásgerður Gylfadóttir, forseti bæjarstjórnar, og Reynir Arnarson, formaður bæjarráðs auk innanríkisráðherra og fylgdarliðs og vegamálastjóra. Rætt var einkum um vega-, flug- og hafnamál og lýstu sveitarstjórnarmenn áherslum sínum í þessum málum. 

Greiðari samgöngur og styttri leið

Hjalti Þór Vignisson bæjarstjóri sagði að brýnt væri að hefja framkvæmdir við nýtt vegstæði á Hringveginum vestan við Höfn og með nýrri brú yfir Hornafjarðarfljót enda núverandi brú komin til ára sinna. Verkefnið er tímasett á öðru og þriðja tímabili tólf ára samgönguáætlunar. Tvennt myndi vinnast með nýrri veglínu að sögn bæjarstjóra, annars vegar almenn stytting Hringvegarins um nálægt 10 km og hins vegar yrðu samgöngur innan sveitarfélagsins greiðari, sérstaklega milli þéttbýlisins á Höfn og byggðarinnar í vestri, sem hann telur nauðsynlegt að bæta vegna almennrar byggðaþróunar á svæðinu. Þá minntu bæjarfulltrúarnir á að nauðsynlegt væri að kanna kosti þess að grafa göng undir Lónsheiði sem bæta myndu umferðaröryggi til muna auk þess að stytta Hringveginn. Einnig bentu þeir á að með styttingu Hringvegarins milli Djúpavogs og Hafnar gætu íbúar á Djúpavogi einnig sótt þjónustu til Hafnar í stað þess að fara yfir fjallveg til Egilsstaða.

Fram kom í máli bæjarfulltrúanna á fundinum að unnið væri að viðamikilli rannsókn í samvinnu við Siglingastofnun sem hefði það að markmiði að kanna mögulegar aðgerðir á grynningunum fyrir utan Hornafjarðarós til að tryggja nægilegt dýpi fyrir skipaumferð. Stærri skip gætu stundum ekki siglt þar um og það þýddi tekjutap fyrir bæinn ef til dæmis uppsjávarskip yrðu að landa afla sínum annars staðar.

Á minnisblaði sem bæjarfulltrúarnir lögðu fram er einnig bent á mikilvægi góðra flugsamgangna og er treyst á að samgönguyfirvöld og fjárveitingavald tryggi áframhaldandi flugsamgöngur. Sögðu bæjarfulltrúarnir flugið nauðsynlegt fyrir heilbrigðisþjónustu og hvers konar viðskipti og aðra atvinnustarfsemi. Sögðu þeir Flugfélagið Erni hafa veitt góða þjónustu og lagt sig fram um að taka þátt í almennri uppbyggingu á ferðaþjónustu svæðisins.

Í því sambandi minnti innanríkisráðherra á fyrirhugaða samfélagsfræðilega könnun til að meta áhrif og þýðingu innanlandsflugs og hvatti bæjarfulltrúa til að fylgjast með undirbúningi hennar. Ráðherra sagði fundinn gagnlegan og að nauðsynlegt væri að heyra raddir heimafólks um umbætur í byggðarlagi sínu.

Frétt Innanríkisráðuneytisins  

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 








Þetta vefsvæði byggir á Eplica