Nú er það hafragrautur
Á síðustu haustönn var gerð tilraun með að bjóða upp á hafragraut á morgnana í skólanum. Sú tilraun mæltist vel fyrir og mættu iðulega nokkrir tugir nemenda í grautinn.
Nú ætlar Prinsessan á bauninni sem er rekstraraðli kaffiteríunnar að bjóða upp á hafragraut á milli 10:00 og 10:30 á morgnana. Nemendum býðst nú að gerast áskrifendur að grautnum og verður hægt að kaupa áskrift í annað hvort tvær eða fjórar vikur. Tvær vikur kosta 2000 krónur og fjórar vikur 3000 krónur. Sé lengri áskriftin valin kostar hvert skipti aðeins 150 krónur.
Við hvetjum því alla til að skoða þetta tilboð og "fylla á tankinn" eins og segir í auglýsingunni, því hafragrautur er ljómandi góð undirstaða fyrir daginn.





Skrifa athugasemd