Fréttir
FAS_Fjallamennska
FAS_Fjallamennska
Mynd @fas.is

07.09.2012 Fréttir

Fjallamennskunemar FAS í grasaferð

Á fimmtudag, föstudag og laugardag í síðustu viku, sátu fjallamennskunemar grasa- og dýrafræðihluta áfangans: Náttúrufræði  fjalla og óbyggða.

Þar fór Skarphéðinn Þórisson líffræðingur yfir helstu háplöntur til fjalla og einnig helstu fugla og villt spendýr sem finnast á fjöllum. Eftir hádegi á laugardag fór svo hluti hópsins í skoðunarferð  til að skoða gróður í fjallendi. Farið var  á bílum langleiðina upp veginn upp að Jöklaseli  sem liggur neðan til yfir Borgarhafnarheiði. Stoppað var á nokkrum stöðum, gengið um og gróðurinn skoðaður. Allar háplöntur sem fundust voru skrifaðar niður og stendur til að skrá þær, sem ekki hafa fundist á þessu svæði  áður, í  Plöntuvefsjá Náttúrufræðistofnunar Íslands (http://vefsja.ni.is/website/plontuvefsja/).

Nemendur voru ánægðir með ferðina og sögðu hana hafa verið mjög gagnlega, enda er skemmtilegt að kunna skil á helstu plöntum sem menn rekast á ferðum sínum um fjöll.

www.fas.is

 

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 








Þetta vefsvæði byggir á Eplica