Fréttir
Maukur M
Haukur M

06.09.2012 Fréttir

Haukur M vann fyrstu verðlaun á Stuttmyndadögum

Mission to Mars, mynd eftir Hauku M  vann fyrstu verðlaun á Stuttmyndadögum 2012 í Reykjavík um helgina.

Stuttmyndadagar hafa verið grasrótarvettvangur íslenskra kvikmynda allt frá 1991. Þar hafa fjölmargir kvikmyndagerðarmenn, sem síðar hafa getið sér gott orð, stigið sín fyrstu spor. Má þar m.a. nefna Árna Óla Ásgeirsson, Maríu Sólrúnu Sigurðardóttur, Rúnar Rúnarsson, Ragnar Bragason, Róbert Douglas, Grím Hákonarson, Reyni Lyngdal og Gunnar B. Guðmundsson.

Haukur hlaut 100.000 kr peningaverðlaun og boð á Short Film Corner á kvikmyndahátíðinni í Cannes að ári.  Þetta er góður stökkpallur fyrir þann sem vinnur þessa keppni og mun Haukur öruglega nýta sér hann. Haukur M og kona hans Ásta eru við nám í mjög virtum kvikmyndaskóla í Póllandi og er Haukur að ljúka við BA próf í kvikmyndaleikstjórn núna í haust og hefur svo nám í master í sama skóla.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 








Þetta vefsvæði byggir á Eplica