Fréttir
Nýheimar
Nýheimar.

05.09.2012 Fréttir

FAS fær silfurviðurkenningu

Þann 14. október á síðasta ári hófst formlega í FAS verkefnið Heilsueflandi framhaldsskóli sem Landlæknisembættið stendur fyrir.

Áhersla síðasta veturs var á næringu og því var reynt að auka fræðslu um hollustu og auka aðgengi nemenda að hollum mat. Heilsuskólaverkefnið er árangursmetið og er höfuðáhersla lögð á fjögur viðfangsefni, þ.e. næringu, hreyfingu, geðrækt og lífsstíl, en eitt viðfangsefni er tekið fyrir á hverju ári. Þegar skólinn hefur uppfyllt lágmarkskröfur gátlista Heilsueflandi framhaldsskóla getur hann öðlast bronsviðurkenningu, en með tímanum getur hann fengið silfur og gull.

Í haust tók til starfa nýr rekstaraðili í Kaffiteríu Nýheima þar sem eingöngu er boðið upp á mjög hollan mat og gætt er að hollustuviðmiðum. Með tilkomu hins nýja veitingastaðar jókst aðgengi nemenda FAS að hollum mat til muna og geta nemendur nú alltaf valið að snæða hollan hádegisverð sé það þeirra vilji. Þessi valmöguleiki hefur gert það að verkum að FAS hlaut á dögunum silfurviðurkenningu frá Landlæknisembættinu fyrir störf sín í verkefninu Heilsueflandi Framhaldsskóli.

www.fas.is

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 








Þetta vefsvæði byggir á Eplica