Frestað - Kynningafundur Vina Vatnajökuls á þriðjudag
04.09.2012 - Fundi frestað um óákveðin tíma
Næstkomandi þriðjudag munu Vinir Vatnajökuls – hollvinasamtaka Vatnajökulsþjóðgarðs halda kynningarfund í Nýheimum þar sem nú munu þeir óska í þriðja sinn eftir styrkumsóknum.
Hlutverk og markmið Vina Vatnajökuls er m.a. að afla fjár til að styðja við rannsóknir, kynningar- og fræðslustarf um Vatnajökulsþjóðgarð með það að markmiði að auka þekkingu almennings og stuðla að því að sem flestir geti notið náttúru þjóðgarðsins, að stuðla að uppbyggingu Vatnajökulsþjóðgarðs í samráði við stjórn þjóðgarðsins og með samstarfi við hagsmunaaðila, innlenda og erlenda, að efla fræðslu og rannsóknir í Vatnajökulsþjóðgarði og næsta umhverfi hans, að styrkja verkefni sem stuðla að samspili Vatnajökulsþjóðgarðs og samfélagsins, að beita áhrifum sínum til að efla samkennd um mikilvægi Vatnajökulsþjóðgarðs fyrir nærliggjandi byggðir og alla landsmenn, að efla skilning umheimsins á mikilvægi Vatnajökulsþjóðgarðs og einstakri náttúru hans á heimsvísu.
Við styrkveitingar vilja Vinirnir setja í forgang verkefni sem stuðla að:
- Aukinni þekkingu almennings á náttúru og sögu Vatnajökulsþjóðgarðs
- Samspili byggðarlaga innan þjóðgarðsins
- Aukinni fræðslu og rannsóknum í Vatnajökulsþjóðgarði og grenndarsamfélagi hans
- Samspili útivistar, menningar og Vatnajökulsþjóðgarðs
- Tengslum barna og unglinga við náttúruna
- Auknum skilningi umheimsins á mikilvægi Vatnajökulsþjóðgarðs og einstakri náttúru hans á heimsvísu
- Eflingu samkenndar um mikilvægi Vatnajökulsþjóðgarðs fyrir nærliggjandi byggðir og alla landsmenn
Sjálfbærri ferðaþjónustu
Umsóknarfrestur stendur til 30. september 2012





Skrifa athugasemd