Glæsilegur farandbikar
Síðast liðið vor tóku þær Brynja Rut og Bjarney Jóna þátt í framhaldsskólamótinu í hestaíþróttum fyrir hönd FAS.
Þar náði Bjarney Jóna þeim stórglæsilega að sigra í skeiði á hestinum Grun frá Hafsteinsstöðum en hann er í eigu Pálma Guðmundssonar. Þetta er jafnframt besti árangur FAS á mótinu hingað til.
Verðlaunin voru ekki af verri endanum en hún fékk bikar til eignar og gjafabréf fyrir fóðurbæti. Fyrir sigurinn fékk hún líka stóran og stæðilega farandbikar sem búið er að áletra með nafni hennar. Bikarinn verður geymdur hér fram að næsta móti. Nemendur sem hafa áhuga á hestum eru hvattir til að kynna sér mótið og jafnvel til að taka þátt næsta vor.
www.fas.is





Skrifa athugasemd