Fréttir
Bardi Ingvaldsson
Bardi Ingvaldsson

29.08.2012 Fréttir

Bókhaldsstofan skiptir um eigendur.

Hermann Hansson hefur selt Barða Ingvaldssyni, endurskoðanda, allt hlutafé í Bókhaldsstofunni ehf. Hinn nýi eigandi tekur við rekstrinum þann 1. september n.k.

Barði Ingvaldsson er löggiltur endurskoðandi og hefur undanfarin 15 ár starfað hjá endurskoðunarfyrirtækinu Deloitte hf.  Meðal verkefna sem hann hefur annast í störfum sínum fyrir Deloitte hf, er þjónusta við ýmis fyrirtæki á Höfn, svo sem Skinney Þinganes hf, og dótturfyrirtæki, einnig Vélsmiðju Hornafjarðar ehf. og allmarga aðra smærri aðila. Eiginkona Barða er Valgerður Ragnarsdóttir.

Bókhaldsstofan ehf. var stofnuð árið 1980. Frumkvæði að stofnun hennar áttu endurskoðendurnir Sigurður Tómasson og Guðjón Eyjólfsson hjá Stoð – endurskoðun hf í  Reykjavík ásamt fyrirtækjum og einstaklingum á Höfn. Vorið 1983 keypti Sigþór Guðmundsson  allt hlutafé félagsins og tók við rekstrinum. Sigþór átti fyrirtækið þar til í nóvember 2002 þegar núverandi eigandi, Hermann Hansson, keypti hlut Sigþórs.

Hjá Bókhaldsstofunni starfa nú fjórir starfsmenn í þremur stöðugildum. Áformað er að Hermann starfi áfram í hlutastarfi næstu mánuði hjá fyrirtækinu.

Bókhaldsstofan mun hér eftir sem hingað til leitast við að veita þjónustu á sviði bókhalds- og fjármála auk framtalsaðstoðar og skyldra verkefna  gegn sanngjörnu endurgjaldi.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 








Þetta vefsvæði byggir á Eplica