Fréttir
FAS Tríerhópur
FAS Tríerhópur
Í heimsókn á Dynjanda þar sem hópurinn fræddist um hesta og geitur (Mynd:FAS)

28.08.2012 Fréttir

Gestir frá Tríer

Í gær komu til FAS góðir gestir frá Tríer í Þýskalandi. Þetta eru 23 nemendur og tveir kennarar frá Max-Planck-Gymnasium en framhaldsskólarnir á Austurlandi hafa átt í samstafi við þennan skóla um langt skeið.

Heimsóknin er liður í núverandi samstarfsverkefni en á síðustu vorönn fóru fjórir nemendur frá FAS ásamt 18 nemendur frá ME og VA til Tríer og dvöldu þar í hálfan mánuð.
Þema verkefnsins að þessu sinni er landbúnaður og var drjúgum tíma í gær eytt að að skoða íslenskan landbúnað. Fyrst var farið í heimsókn á Dynjanda þar sem hópurinn fræddist um hesta og geitur. Í Akurnesi kynntist hópurinn sauðfjár- og karftöflurækt. Loks var komið við í fjósinu á Seljavöllum.

Hópurinn heldur áfram í dag austur á land þar sem mun verða dvalið næstu daga. Ferðalag þeirra hefur gengið ljómandi vel en heldur finnst þeim þó kalt en þegar hópurinn fór frá Þýskalandi síðasta föstudag var  þar ríflega 30°C hiti. Það eru því mikil viðbrigði að koma í norðaustan garrann hér.  

www.fas.is

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 








Þetta vefsvæði byggir á Eplica