Vígsla nýnema í FAS
Í gær föstudaginn 24. ágúst var hin árlega busavígsla haldin í FAS. Nýnemar ákváðu sjálfir hvort þeir vilja taka þátt í þeirri dagskrá og skipaði nýnemahópurinn nú um 20 manns.
Útskriftarnemum stóð til boða að hafa umsjón með busavígslunni og varð úr að 9 stúdentsefni héldu utan um dagskrána.
Nýnemar mættu snemma í skólann eða stundvíslega klukkan sjö klæddir í pils, sokkabuxur, plastpoka og annan viðeigandi klæðaburð. Dagskráin fór fram samhliða hefðbundnu skólastarfi og mættu nemendur í tíma samkvæmt stundaskrá. Í hádeginu var farið í skrúðgöngu umhverfis Nýheima og endaði dagurinn á hinni hefðbundnu þrautabraut á grasblettinum vestan við Nýheima.
Öll dagskráin fór vel fram og eru nýnemar nú formlega vígðir inn í FAS.





Skrifa athugasemd