Fréttir
Magnhildur Gísladóttir
Magnhildur Gísladóttir

24.08.2012 Fréttir

Verkefnastjóri í málefnum íbúa af erlendum uppruna

Magnhildur Gísladóttir hóf  tímabundin störf sem verkefnastjóri með málefnum íbúa af erlendum uppruna nú í ágúst. 

Magnhildur hefur áratuga reynslu af kennslu og hefur menntað sig og starfað að málefnum íbúa af erlendum uppruna á undanförnum árum.  Bæjarráð Hornafjarðar tók ákvörðun fyrr á þessu ári að leggja fjármuni í verkefni sem miðar að því að byggja upp heildstætt starf starf í þessum málaflokki.  Næsta vor verður afrakstur verkefnisins metinn og tekin ákvörðun um hvernig best verður hlúð að starfinu til lengri tíma litið.

Áhersla verður lögð á að nemendur leik- og grunnskóla fái stuðning í sínu námi. Boðið verður upp á heimavinnuaðstoð fyrir grunnskólanema því nemendur sem eiga foreldra að erlendum uppruna sitja ekki við sama borð og aðrir þegar kemur að aðstoð með heimavinnu í íslenskum grunnskóla.  Menningarmiðstöðin verður einnig með fjölmenningarlegar áherslur í sínu starfi og mun það verða kynnt síðar. Starfið er  unnið í samstarfi við stofnanir og  atvinnurekendur því mikilvægt er að allir aðilar samfélagsins vinni saman í að gera aðlögun nýrra íbúa sem besta.  Undanfarið hefur verið haft samband við ýmsa aðila um samstarf og hafa viðtökur verið góðar.  Markmiðið með starfinu er að hlúa að fjölmenningarlegu bæjarfélagi.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 








Þetta vefsvæði byggir á Eplica