Skólastarf hafið í FAS
Í morgun hófst skólastarf formlega í FAS þegar skólinn var settur. Strax eftir skólasetningu tók Sanda Björg við og kynnti félagsmál nemenda en félagslífið tengist fyrst og fremst ýmis konar klúbbastarfi.
Nemendur eru mjög áhugasamir og í dag bættust listaklúbbur og Gettu betur klúbbur við þá níu klúbba sem voru starfræktir í voru á síðasta ári.
Klukkan 11 var komið að umsjónarfundi þar sem nemendur fengu stundaskrá og farið var yfir með þeim mikilvæg atriði sem tengjast náminu.
Kennsla hefst svo í fyrramálið samkvæmt stundaskrá. Hafi nemendur ekki fengið stundaskrár er hægt að nálagast þær í Innu.
Nú er því um að gera að stilla vekjaraklukkurnar og mæta með bros á vör í skólann á morgun.
www.fas.is





Skrifa athugasemd