Farþegaskip í Hornafjarðarhöfn
Farþegaskipið Caledonian Sky kom til Hafnar í morgun og að sögn Sigurðar Guðmundssonar hafsögumaður þá er þetta þriðja farþegaskipið til okkar í sumar, en um borð í þessu skipi eru 180 manns, 102 farþegar og 76 manna áhöfn.
Sigurður segir að enn sé von á einu farþegaskipi til okkar í sumar. Hann segir að áætlaðar tekjur af öllum skipunum sem hafa komið til Hafnar þetta sumar sé um milljón sem fer í hafnarsjóð, síðan eru það tekjurnar sem farþegar skilja eftir í sveitarfélaginu en það skiptir miljónum sem fara m.a. í siglingar á Jökullsárlóni, ferðir með Vatnajokul travel, minjagripasölu og veitingstaði.
Þess má geta að undanfarin ár fyrir utan síðustu tvö kom að jafnaði 1 skip annaðhvert ár eða sjaldnar en 2010 komu 2 skip og 2011 einnig 2 skip. Ástæða fyrir þessari aukningu síðustu ára má rekja til þess að Hornafjarðarhöfn hefur markvisst verið að markaðsetja sig í þessu sviði. Það er Sigurður hafsögumaður hefur stýrt þessu verkefni, sem hefur m.a. falið í sér að hann hefur sótt sýningar erlendis bæði í Evrópu og nú síðast á Miami í Bandaríkjunum. Sigurður semgir að þetta sé langhlaup sem muni eflaust skila sér þegar fram líða stundir enda eru ferðir farþegaskipa bókaðar mörg ár fram í tímann.





Skrifa athugasemd