Ráðinn í starf tómstundafulltrúa
Vilhjálmur Magnússon sem áður starfaði við Grunnskóla Hornafjarðar hefur verið ráðinn í starf tómstundafulltrúa á grunni víðtækrar reynslu og hæfni sem nýtist vel í starfinu.
Fyrirhugaðar eru breytingar á starfsemi félagsmiðstöðvar þar sem húsnæði Þrykkjunnar var nýverið selt til kaþólska safnaðarins á Höfn. Vöruhúsið verður hin nýi vettvangur tómstundastarfs barna og ungmenna. Hugmyndin er að flétta starfið eins mikið og efni og aðstæður leyfa þeirri verkgreinaaðstöðu sem fyrir er í húsinu og þannig auka fjölbreytni enn frekar í tómstundastarfi. Um leið og Vilhjálmur er boðinn velkominn til starfa er Árna Rúnari Þorvaldssyni, fráfarandi forstöðumanni Þrykkjunnar, þakkað fyrir vel unnin störf og óskað velfarnaðar á nýjum vettvangi





Skrifa athugasemd