Fréttir
Opnun Svavarssýningar 2011 1
Opnun Svavarssýningar 2011 1
Opnun sýningar á verkum Svavars Guðnasonar (úr myndasafni)

12.08.2012 Fréttir

Safnamál á tímamótum.

Listasafn Svavars Guðnasonar var opnað sumarið 2011 og er opið alla virka daga ársins og um helgar á sumrin. Þar eru fjölbreyttar sýningar á málverkum, ljósmyndum og öðrum listaverkum settar upp með reglulegum hætti.


Breytingar
Listasafn Svavars Guðnasonar var opnað sumarið 2011 og er opið alla virka daga ársins og um helgar á sumrin. Þar eru fjölbreyttar sýningar á málverkum, ljósmyndum og öðrum listaverkum settar upp með reglulegum hætti. Listasafnið skapar sveitarfélaginu sérstöðu á landsvísu en nær hvergi er safn sem stenst alla gæðastaðla Listasafns Íslands. Þá fjárfesti sveitarfélagið fyrir nokkrum árum í þjónustuhúsi fyrir safnastarfsemina, að Álaleiru þar sem færi gefst á að skrá, varðveita og rannsaka gripi.
Gamlabúð var flutt aftur á hafnarsvæðið nú í vor. Byggðasýning sem þar hefur verið undanfarin 30 ár var tekin niður. Í vetur verður húsið undirbúið á ný fyrir gestakomur. Ný sýning verður sett upp í samvinnu sveitarfélagsins og Vatnajökulsþjóðgarðs þar sem sambýli mannsins við hina einstöku náttúru svæðisins mun verða grunnstefið. Þar verður tvinnað saman efnistökum hinnar eldri sýningar í Gömlubúð og Jöklasýningar með þá miklu fræðslu um jökla sem þar er að finna.
Á Íslandi hefur sýningum og söfnum fjölgað mjög á undanförnum árum. Hér í sveitarfélaginu var Þórbergssetur og Huldusteinn opnuð eftir að Jöklasýning var endurbætt árið 2005 að ógleymdum áðurnefndi Listasafni. Að auki er sýning í gestastofunni í Skaftafelli. Hin nýja sýning í Gömlubúð er því fimmta sýningin sem til staðar verður í sveitarfélaginu.

Sérstaða
Hugmyndir hafa verið nefndar um að setja upp sýningu í Holti á gripum Sigurðar Filipussonar í samvinnu við nýstofnað átthagafélag á Mýrum. Einnig hefur sveitarfélagið, í gegnum atvinnu- og rannsóknasjóð, stutt þó nokkra aðila til að hefja forkönnun á því að miðla sögu einstakra jarða héraðsins með uppbyggingu sýninga. Ef til þess kemur verða þær unnar samkvæmt skilyrðum og viðmiðunum í lögum og reglum um safnamál, íslenskum og alþjóðlegum. Markmiðið með þessu er að gera hinu gamla landbúnaðarsamfélagi skil í sínu rétta umhverfi, miðla menningararfinum til ferðamanna og auka aðgengi allra íbúa sveitarfélagsins að því að kynnast og fræðast um hið horfna samfélag.
Það er jafnframt mikilvægt að gera uppruna og þróun byggðar á Höfn skil, sem verslunar og útgerðarstaðar.  Samhliða uppbyggingu sýninga til sveita um gamla landbúnaðarsamfélagið verður unnið að undirbúningi og uppsetningu sýningar um þróun Hafnar. Í sumar hafa íbúar fengið að sjá vísi að sjóminjasafni þróast við Heppuna, í Skreiðarskemmunni svokallaðri.  Á næstu mánuðum og misserum verður síðan unnið að þróun, hönnun og uppsetningu varanlegrar sýningar um sögu Hafnar.
Grunnstefið í allri þessari uppbyggingu verður sérstaða: að byggja safnamál á sérstöðu svæðisins og þróun samfélags en ekki síður að skapa svæðinu sérstöðu á meðal annarra safnasvæða á landinu. Það þarf að gæta vel að því að gera ekki alltaf það sama og aðrir heldur að draga fram séreinkenni héraðsins og skapa þannig aðdráttarafl fyrir ferðamenn. Sú sérstaða felst ekki síst í hinum mikla sambýli mannsins við reginöfl náttúrunnar, voldugasta jökul utan heimskautanna á aðra höndina og Atlantshafið í hina.

Viðburðir og skapandi starf
Hlutverk sveitarfélagsins á sviði menningarmála er víðtækara en að halda úti sýningum og söfnum. Það verður sífellt betur viðurkennt að skapandi hugsun er mikilvæg fyrir jákvæða þróun byggðar. Sú hugsun sprettur ekki upp úr hvaða jarðvegi sem er. Menningarstarf og félagslíf hefur þar mikið að segja því í samskiptum við annað fólk kynnumst við fleiri sjónarmiðum og myndum traust sem seinna er mikilvægt á opinberum vettvangi sem og í viðskiptum. Þá er hið skapandi starf jafnframt atvinnugrein í sjálfu sér og sífellt umfangsmeiri í nútímaþjóðfélagi. Ungt fólk sækir sífellt meira á þann vettvang (mætti nefna listir ýmiskonar, hönnun, handverk, afþreyingariðnað og fjölmiðlun). Fólk sem starfar innan skapandi greina hafa komið sér upp færni til að leysa úr margvíslegum vanda í mannlegu samfélagi og uppfylla væntingar og óskir neytenda, og gera lífið skemmtilegra. Hlutverk sveitarfélagsins er að styðja við slíka frumkvöðla og hvetja fólk áfram.

Fjölbreytni
Framtíðarsýnin er að Sveitarfélagið Hornafjörður að vera þekkt fyrir fjölbreytni í menningarmálum þar sem áhersla er lögð á að miðla sérstöðu svæðisins í gegnum söfn og sýningar og byggja upp atvinnulíf þar sem skapandi fólk hefur aðstöðu og stuðning til að þróa vörur sínar og þjónustu.

Atvinnu og Menningarmálanefnd

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 








Þetta vefsvæði byggir á Eplica