Fréttir
Frjálsar á nýjum velli
Frjálsar á nýjum velli
(úr myndasafni)

09.08.2012 Fréttir

Meistaramót í frjálsum haldið á Höfn um helgina

USÚ hefur verið falið það hlutverk að halda Meistaramót Íslands í frjálsum íþróttum 15-22 ára hér á Hornafirði þetta árið og mun mótið fara fram helgina 11.-12. ágúst.

Undirbúningur hefur átt sér stað í allt sumar með samstarfi USÚ, Ungmennafélagsins Sindra og Sveitarfélagsins Hornafjarðar. Von er á um 140 keppendum hér á svæðið. Þetta eru allt efnilegustu keppendur landsins í frjálsum íþróttum og jafnvel ólympíufarar framtíðarinnar.

Hér verður keppt í öllum helstu íþróttagreinum svo sem hlaupum, stökkum og kastgreinum. Gaman er að segja frá því að það verður keppt í fyrsta skiptið í stangastökki og sleggjukasti hér á Sindravöllum. Mótsstjóri er Zophonías Torfason og með honum hafa starfað stjórn USÚ, frjálsíþróttadeild Sindra og Valdemar framkvæmdastjóri Sindra. Fjöldi starfsmanna ætlar að aðstoða okkur við framkvæmd keppninnar og er ánægjulegt hversu margir eru tilbúnir að leggja hönd á plóg í svo mikilvægu verkefni. Þetta verður góður undirbúningur fyrir Unglingalandsmótið sem verður haldið hér næsta sumar en meðfylgjandi er mynd af þátttakendum á mótinu þetta árið en þeir voru um 40 sem kepptu fyrir hönd USÚ. Við hjá USÚ erum með 3 stúlkur sem keppa á mótinu ásamt 4 manna sveit drengja sem keppir í boðhlaupi. Sveinbjörg og Einar Ásgeir munu einnig keppa en undir merkjum annarra félaga að þessu sinni. Við viljum hvetja bæjarbúa til að fjölmenna á Sindravelli á laugardag og sunnudag og fylgjast með þessum spennandi viðburði en keppnin hefst klukkan 10 á laugardagsmorgni.

Fyrir hönd undirbúningsnefndar
Matthildur Ásmundardóttir
Formaður USÚ

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 








Þetta vefsvæði byggir á Eplica