Sveinbjörg Norðurlanda- og Eystrasaltsmeistari í langstökki
Um síðustu helgi varð Sveinbjörg Zophoníasdóttir Norðurlanda- og Eystrasaltsmeistari í langstökki í flokki 20-22 ára á móti sem fór fram í Jessheim í Noregi.
Keppnin í langstökkinu var æsispennandi og skildu aðeins nokkrir sentimetrar á milli keppenda í verðlaunasætunum. Hún stökk 6,06m síðan þegar heim var komið þá keppti hún í langstökki á Gaflaranum, móti sem haldi er árlega hjá FH þar stökk hún 6.27m sem er nýtt íslandsmet í flokki 20-22 ára en gamla metið var 6.17m og var 29 ára gamalt.
Helgina 12.-14. ágúst verður haldið hér á Hornafirði, Meistaramót Íslands 15-22 ára í frjálsum og ætlar Sveinbjörg að koma hingað og keppa og þá gefst okkur sem hér búum að horfa á nýbakaðan Norðurlandameistara og íslandsmethafa keppa á heimavelli.




Skrifa athugasemd