Fréttir
Bryndís Bjarnarson
Bryndís Bjarnarson

26.07.2012 Fréttir

Bryndís Bjarnarson ráðin upplýsinga- og gæðastjóri

Fyrr í sumar auglýsti Sveitarfélagið Hornafjörður eftir umsóknum í starf upplýsinga- og gæðastjóra.  Eftir ráðningarferli var það niðurstaða bæjarráðs að Bryndís Bjarnarson yrði fyrir valinu. 

Bryndís er fædd 1964, hefur BA prófí hagfræði, heimspeki og stjórnmálafræði frá Bifröst, diplómu í menningarstjórnun á MA stigi frá sama skóli auk þess að hafa setið nokkur námskeið í meistaranámi í opinberri stjórnsýslu.  Bryndís hefur góða þekkingu á sveitarstjórnarstiginu og stjórnsýslu, býr yfir skipulagshæfileikum og góðri almennri tölvukunnáttu og hefur reynslu af stjórnun.  Þá hefur Bryndís reynslu af störfum í atvinnulífi, hefur verið virk í margvíslegu félagsstarfi, átt í samskiptum við ráðuneyti og unnið við stefnumótun.  Jafnframt hefur hún unnið að kynningarstarfi og starfað í nánum tengslum við fjölmiðla. 

Helstu verkefni upplýsinga og gæðastjóra eru að hafa yfirumsjón með uppýsinga- og gæðamálum fyrir sveitarfélagið á öllum sviðum þess; sinna eftirfylgd við gerða samninga sveitarfélagsins við ríki, stofnanir, einstaklinga, fyrirtæki og félagasamtaök; halda utan um vef sveitarfélagsins; styðja við og eftir atvikum hafa umsjón með stefnumótun fyrir sveitarfélagið ásamt öðrum verkefnum sem komu fram í auglýsingu með starfinu.

Bryndís mun hefja störf um miðjan september.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 








Þetta vefsvæði byggir á Eplica