Fréttir
Hjalti þór Vignisson
Hjalti þór Vignisson

10.07.2012 Fréttir

Varasamar grynningar við Hornafjörð

Viðtal á ruv.is við Hjalta Þór Vignisson bæjarstjóra

Grynningar við Hornafjarðarós valda sjófarendum vandræðum og eru dæmi um að skip hafi strandað þar á leið til hafnar. Hjalti Þór bæjarstjóri segir óbreytt ástand geta tafið fyrir þróun útgerðar í sveitarfélaginu.

Það tók Hornfirðinga áratugi að bæta siglingaleiðna um Hornafjarðarós en þar um fer öll skipaumferð til og frá Höfn. En skammt utan við ósinn er sandrif sem ítrekað veldur vandræðum. Útgerðin á Hornafirði hefur þróast mikið undanfarin ár og skipin stækkað og því er orðið mjög brýnt að útrýma þessum grynningum.

Taka ítrekað niður
Sandrifið sem Hornfirðingar kalla Grynnslin liggur  þvert á siglingaleiðina um ósinn. Dýpið þar er um sjö metrar sem er um það bil það sem stærstu fiskiskip Hornfirðinga rista. Þau hafa því tekið ítrekað niður á þessum grynningum.

„Það er náttúrulega orðið mjög brýnt verkefni fyrir bæjaryfirvöld á Hornafirði að skoða það fyrir alvöru hvernig hægt er að tryggja meira dýpi hér fyrir utan ós, vegna þess að útgerðin er og verður höfuð atvinnugrein staðarins," segir Hjalti Þór Vignisson, bæjarstjóri á Hornafirði.

Flókið samspil
Sveitarfélagið Hornafjörður, Siglingastofnun og fleiri vinna nú saman að viðamiklum mælingum á sjávarstraumum í ósnum og utan hans í því skyni að finna varanlegar lausnir. Í kjölfarið segir Hjalti að hugsanlega verði gert líkan af svæðinu utan við ósinn til að meta hvort hægt verði að losna endanlega við þetta sandrif.

„Menn hafa verið að skoða það hvort það er hugsanlega ein lausnin að nota Hornafjarðarfljótin, sem renna hér út, sem afl til að kasta þá yfir þessar grynningar. En þetta eru allt bara kenningar og tilgátur ennþá vegna þess að þetta er mjög flókið samspil hérna fyrir utan ós," segir hann.

Fréttin á ruv


Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 








Þetta vefsvæði byggir á Eplica