Jón Bjarnason kominn til að vera
Vegfarendur sem hafa keryrt fram hjá Sigurðar Ólafssonar húsinu (Krosseyjarvegur 17) hafa tekið eftir glæsilegum málverkum sem eru utan á húsinu.
Nú hefur Jón Bjarnason fyrrverandi sjávarútvegsráðherra verið málaður á vegg hússins í skötuselslíki þar sem hann syndir meðal hákarla, steinbíts, lúru, humars svo eitthvað sé nefnt.
Jón er m.a. þekktur fyrir í tíð sinni að hafa sett frumvarpið þar sem skötuselsveiðar voru gefnar frjálsar þrátt fyrir að ýmsir höfðu þegar verið búnir að fjárfesta í veiðikóta sem varð verðlaus, hvort það sé ástæðan fyrir því að hann fær þann heiður að vera málaður í skötuselslíki skal ósagt.
Listamaðurinn á bak við málverkið af Jóni og hinna málverkana á húsinu er Sívar Árni Scheving sem er m.a. þekktur listræna hæfileika. Að sögn Sívars Árna þá er það alger lúxus að geta leikið sér í sumarfríinu við að mála.





Skrifa athugasemd