Fréttir
Félagslíf í FAS
Félagslíf í FAS
Mynd FAS

29.06.2012 Fréttir

Sumarfrí í FAS og upphaf haustannar

Nú er skólastarfi vorannar lokið og allir starfsmenn komnir í sumarfrí. Síðustu dagana hefur verið unnið að nýjum vef sem fjallar um náttúrufræðirannsóknir á vegum skólans.

Skólinn hlaut í vetur styrk frá Vinum Vatnajökuls til að safna saman upplýsingum og koma á framfæri. Nú er búið að setja stóran hluta af upplýsingunum á vefinn http://nattura.fas.is

Skrifstofa skólans er lokuð til 8. ágúst. Allir nýnemar eiga nú að hafa fengið bréf frá skólanum. Tekið verður við umsóknum til 28. ágúst en þá lýkur áfangaskráningu. Þeim sem eru að huga að námi er þó bent að skrá sig sem fyrst á vef skólans.

Haustönnin byrjar 20. ágúst en þá er skólasetning klukkan 10 og í kjölfarið verða umsjónarfundir. Kennsla hefst síðan samkvæmt stundaskrá 21. ágúst.

www.fas.is 

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 








Þetta vefsvæði byggir á Eplica