Starfsemi Nemendafélags FAS á vorönn 2012
Sandra Björg Stefánsdóttir, félagsmálafulltrúi FAS
Á vorönn 2011 ákvað nemendafélag FAS ásamt skólastjórn að leggjast í vinnu við endurskoðun á starfsemi nemendafélagsins. Allir nemendur voru boðaðir á fund og leitað var eftir hugmyndum um hvernig bæta mætti starfið og þar með félagslífið í skólanum.
Strax næsta haust voru gerðar breytingar á starfinu. Einn liður í þeim breytingum var ferðalag fimm nemenda ásamt félagsmálafulltrúa skólans hringinn í kringum landið þar sem heimsóttir voru þrír mismunandi skólar sem svipaðir eru FAS að stærð og skipulagi. Heimsóttir voru Menntaskólinn á Tröllaskaga, Fjölbrautarskóli Norðurlands vestra og Fjölbrautarskóli Snæfellinga. Lærðu ferðalangar mikið af ferðinni og að henni lokinni var lagður grunnur að áframhaldandi breytingum á starfi Nemendafélagsins.
Á skólasetningu í janúar 2012 voru allir nemendur beðnir um að velja sér einn klúbb til að starfa með út önnina. Hver og einn klúbbur hafði mismunandi áherslur og voru nemendur beðnir um að velja sér klúbb eftir áhugasviði sínu. Var þessi aðgerð liður í verkefninu Sjálfbært og lýðræðislegt félagslíf í FAS en skólinn hlaut styrk frá Sprotasjóð fyrir því verkefni á vordögum 2011. Verkefninu var ætlað að efla sjálfstæðisvitund nemenda og ábyrgðartilfinningu. Á sama tíma var vonast til þess að nemendur átti sig enn frekar á hlutverki sínu í samfélaginu og einnig að þeirra þátttaka og ekki síður frumkvæði sé mjög mikilvægt.
Þennan fyrsta skóladag vorannar voru stofnaðir hvorki meira né minna en 12 klúbbar innan FAS og voru allir nemendur sem skráðu sig í klúbb skráðir í áfangann TÓM 173. Þar með fengu þau sameiginlegan tíma á stundaskrá og gátu klúbbarnir valið sér að hittast annað hvort á miðvikudögum eða fimmtudögum í hverri viku. Hver klúbbur kaus sér formann en hann bar ábyrgð á skráningu fundargerða og mætinga í klúbbnum. Auk þess sem hann mætti vikulega á fundi fulltrúaráðs sem segja má að hafi tekið við hlutverki þess sem áður hét nemendaráð. Í fulltrúaráði sátu því 12 einstaklingar ásamt félagsmálafulltrúa skólans. Á fundum ráðsins miðluðu fundarmenn upplýsingum sín á milli í tengslum við viðburði klúbbanna, hófu samvinnuverkefni og tóku margar ákvarðanir er snéru að utanumhaldi, rekstri og stjórnun nemendafélagsins.
Fyrir virka þáttöku í klúbbastarfi gátu nemendur unnið sér inn einingu en þannig undirstrikaði skólastjórn þá skoðun sína að virk þátttaka og frumkvæði er mikilvægur hluti af námi í framhaldsskóla.
Viðburðir
Viðburðir annarinnar voru fjölmargir og ólíkir. Margir af hinum 12 klúbbum héldu fleiri viðburði en einn eða skiluðu af sér fleiri en einni afurð. Í janúar mánuði var haldið Kaffihúsakvöld í Nýheimum, nemendur kynntu nýtt fyrirkomulag á starfi nemendafélagsins í föstudagshádegi í Kaffiteríu Nýheima ásamt ljósmyndasýningu frá ljósmynda-klúbbi. Þá var stofnuð heimasíða fyrir nemenda-félagið, auk þess sem haldið var LAN og lið skólans tók þátt í Gettu Betur.
Febrúar mánuður hófst á þorrablóti sem haldið var í samvinnu við Kaffihornið. Sá viðburður hefur ekki verið haldinn undan farin ár en er vonandi kominn til að vera. Þá var haldið stelpu/konukvöld á Hótel Höfn, nokkrar keppnir voru haldnar og má þar nefna handboltamót, FIFA mót, ljósmyndaáskorun og RockBand mót. Í þessum mánuði hóf einnig leiklistarklúbburinn vinnu við uppsetningu leikverks sem sett var upp í samvinnu við Leikfélag Hornafjarðar. Haldið var öskudagsball í Nýheimum á Öskudaginn fyrir börn sveitarfélagsins og reyndist viðburðurinn vera góð fjáröflun fyrir nemendafélagið. Í lok mánaðarins var síðan opin vika í FAS en þá gafst klúbbunum kostur á að vinna að sínum verkefnum allan daginn í heila viku. Útvarpsútsendingar hófust eldsnemma á mánudagsmorgni og fyrsta skólablað vetrarins var gefið út. Ljósmyndasýning var sett upp, útbúið var retro-herbergi í einni stofu skólans og vikan endaði svo á árshátíð skólans sem var með glæsilegasta móti.
Eftir annasama viku um mánaðarmótin fór marsmánuður rólega af stað. Þó var fljótlega byrjað að huga að kosningum sem fóru fram strax eftir páskafrí. Í seinni hluta mánaðarins var haldið sundstuð í Sundlaug Hafnar, einnig var haldið LAN mót ásamt því að meistaramótið vinsæla var endurtekið en þar var keppt í hinum ýmsu þrautum og leikjum. Þann 31. mars héldu fulltrúar FAS í Söngkeppni framhalds-skólanna suður til Reykjavíkur og var lagið þeirra tekið upp í myndveri SagaFilm. Framlag skólans tók þátt í undankeppni söngkeppninnar en þrátt fyrir frábæra frammistöðu Þorgeirs og Kolbrúnar Birnu var lagið þeirra ekki eitt þeirra tólf laga sem komust í aðalkeppnina.
Eftir páskafrí var opnað fyrir framboð til forsetakosningar NemFAS þar sem frambjóðendur voru tveir. Í þriðju viku apríl mánaðar var mikið um að vera hjá nemendafélaginu en þá kom út annað skólablað ásamt kosningablaði. Þá hélt hópur nemendar upp á Hvannadalshnjúk með Einari í Hofsnesi og leikhópurinn frumsýndi leikverkið Átta Konur undir stjórn Guðjóns Sigvaldasonar. Í upphafi þessarar þriðju viku mánaðarins var einnig haldinn aðalfundur nemendafélagsins þar sem forseti fór yfir starf vetrarins og fjármálum voru gerð skil. Auk þess voru samþykktar nokkrar breytingar á lögum félagsins sem ættu auka skilvirkni enn frekar. Þar að auki voru haldnar forsetakosningar þar sem Sólveig Valgerður var kjörinn forseti næsta veturs og Róslín Alma varaforseti. Einnig var haldinn nemendafundur en þar voru nemendur beðnir um að meta starf félagsins í vetur. Loks kynntu allir tólf klúbbarnir starf sitt í máli og myndum í Kaffiteríu Nýheima. Í kjölfarið var nemendum boðið upp á grillaðar pylsur í vorblíðunni og lauk þar með formlegri starfsemi nemendafélagsins þennan veturinn.
Eins og sjá má var nemendafélagið gífurlega öflugt í vetur og ræðst það fyrst og fremst á því að nánast allir nemendur lögðu eitthvað af mörkum við skipulagningu og framkvæmd hinna ólíku viðburða og verkefna. Þá tóku nemendur þá ákvörðun að nýta skólahúsnæðið undir flesta viðburði félagsins og mæltist það mjög vel fyrir.
Hvernig tókst til í vetur?
Eins og áður hefur komið fram var haldinn nemendafundur í apríl þar sem nemendur voru beðnir um að meta starfið í vetur og hvernig til tókst. Einnig voru nemendur beðnir um að koma með tillögur að því hverju mætti breyta til þess að verkefnið gæti þróast áfram. Nemendum var skipt niður í fimm hópa sem allir ræddu málin og komu sínum skoðunum á framfæri. Í stuttu máli voru nemendur ánægðir með hið nýja fyrirkomulag og vildu að áfram yrði haldið í sömu mynd næsta vetur.
Önnur leið til að meta hvernig til tókst með félagslíf skólans var verkefni tveggja nemenda í verkefnaáfanga í félagsvísindum 173, en Alen Haseta og Sindri Örn Elvarsson völdu að framkvæma könnun um félagslíf skólans og meta viðhorf nemenda til þeirra breytinga sem áttu sér stað á skólaárinu. Völdu drengirnir sér rannsóknarspurninguna Hefur félagslíf FAS og viðhorf nemenda til þess breyst á undanförnum misserum. Lögðu þeir spurningalista fyrir nemendur í Opinni viku og tóku alls 97 manns þátt. Strákarnir báru sínar niðurstöður saman við niðurstöður könnunar sem framkvæmd var árið 2010. Leiddi sá sambanburður í ljós að nemendur voru töluvert mikið jákvæðari nú gagnvart félagslífi skólans en áður auk þess sem nemendur horfa björtum augum fram á veginn.
Horft til framtíðar
Markmiðið með endurskipulagningu félagslífsins í FAS var að virkja sem flesta nemendur og þjálfa upp lýðræðisleg vinnubrögð meðal nemenda. Það læra þeir meðal annars með því að starfa með klúbbunum og með samvinnu klúbba, bæði þegar kemur að fjáröflun og skipulagi.
Miðað við hin jákvæðu viðbrögð frá nemendum skólans er næsta víst að haldið verður áfram á sömu braut með vinnu að bættu félagslífi í FAS. Virkni nemenda í félagslífi skólans hefur aukist mikið á vorönn og segja má að frá áramótum hafi eitthvað verið á döfinni í hverri viku og þátttaka góð á flesta viðburð sem allir stóðu undir sér fjárhagslega. Þess ber að geta að nemendur voru mjög duglegir að afla styrkja, bæði í formi peninga og einnig í formi gjafa og gjafabréfa. Sá stuðningur utan úr bæ er ómetanlegur og þakka bæði nemendur og félagsmálafulltrúi kærlega fyrir þá aðstoð.
Engum blöðum er um það að fletta að félagslífið í FAS var mjög virkt og ef áfram verður haldið á þessari braut má áætla að FAS verði í hópi þeirra skóla sem hafa hvað öflugast og fjölbreyttast félagslíf hér á landi. Hálfnað er verk þá hafið er segir málshátturinn og því er um að gera að halda áfram því framhaldsskólaárin eiga jú að vera einn skemmtilegasti tími í lífi hvers og eins nemanda.
Sandra Björg
Félagsmálafulltrúi FAS




Skrifa athugasemd