Fréttir
Stígur Reynisson
Stígur Reynisson

18.06.2012 Fréttir

Gunnar Stígur Reynisson valinn í Bjarnanesprestakalli

Valnefnd Bjarnanesprestakalls ákvað á fundi sínum s.l. fimmtudag að leggja til að Gunnar Stígur Reynisson guðfræðingur yrði skipaður í embætti prests í Bjarnarnesprestakalli.

Um er að ræða 50% stöðu sem veitist frá 1. júlí næstkomandi. Það er biskup Íslands sem skipar í embættið að fenginni umsögn valnefndar. Valnefnd skipa níu manns úr prestakallinu auk prófasts Suðurprófastsdæmis. Bjarnanes prestakall er nú eitt prestakall með 1,5 stöðugildi.

Stígur sem útskrifaðist frá Háskóla Íslends sem Cand.theol í febrúar sl. er sonur Jóku Stígs og Reynis Óla. Stígur er í sambúð með Fríði Hildu Hafsteinsdóttur.
Að sögn Stígs þá hlakkar hann mikið til að koma aftur heim og starfa með séra Sigurði Kr. og að sjálfsögðu þjóna öllum Hornfirðingum eftir bestu getu.

Til fróðleiks þá er hér linkur á viðtal við Stíg vegna ritgerðar sem hann skrifaði um „trúarbrögðin“ knattspyrnu (sjá hér).

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 








Þetta vefsvæði byggir á Eplica