Safn fólksins - tekið á móti munum
Nú gefst Hornfirðingum tækifæri á að setja muni sem tengdir eru sjávarútvegi staðarins á sitt eigið safn.
Hönnuður Bláalónsins. Sigurður Þorsteinsson hefur veg og vanda með þessu verkefni og er það í höndum Hrafnkels Ingólfssonar, þ.e. Kela sem kenndur er við Hafnarbúðina að taka á móti safnmunum.
Þetta þurfa ekki að vera stórir munir, aðeins nokkrir en það þarf að fylgja þeim saga um hvaðan þeir séu og hvernig þeir tengjast sjávarútvegi staðarins.
Tekið verður á móti mununum á morgun laugardag frá kl.12-16 milli Lönguvitleysu og portsins, þ.e. bak við gömlu síldarbraggana.
Nú er um að gera að leita að skemmtilegum munum og taka þátt.





Skrifa athugasemd