Fréttir
Umhverfis og auðlindafræði-1
Umhverfis og auðlindafræði-1
Umhverfis og auðlindafræði-1
Mynd 1 af 4
1 2 3 4

14.06.2012 Fréttir

Fjarnám og stúdentspróf í umhverfis- og auðlindafræði


Frá og með haustönn 2012 verður hægt að stunda nám í umhverfis- og auðlindafræði á framhaldsskólastigi í fyrsta sinn hér á landi.  Um er að ræða fjarnám til stúdentsprófs sem nemendur geta stundað hvar sem þeir eru búsettir.
 
Um allan heim snúast stærstu viðfangsefnin í nútíð og framtíð um samspilið milli nýtingar og verndunar auðlinda.   Það sést á heitum umræðum hér á landi undanfarin misseri, þar sem spurt er; „hvernig á að nýta auðlindir lands og sjávar, hvar á að virkja og hvað á að vernda?“  Hagkerfi heimsins byggja á því að nýta auðlindir, án þess þó að eyðileggja þær.  Á þetta reynir í öllum atvinnugreinum, sjávarútvegi, landbúnaði, iðnaði og ferðaþjónustu.

Í náminu á umhverfis- og auðlindabraut fléttast náttúruvísindi og félagsvísindi saman á spennandi hátt.  Auk kjarnagreina er boðið upp á áfanga í auðlindafræði, umhverfisfræði, vistfræði, landafræði, og hagfræði. 

Umhverfis- og auðlindabrautin er rekin í samstarfi fjögurra framhaldsskóla, Menntaskólans á Egilsstöðum, Framhaldsskólans í Austur Skaftafellsýslu, Menntaskólans á Tröllaskaga og Fjölbrautaskóla Snæfellinga.  
Nemendur staðsettir vítt og breitt um landið, eða hvar sem er í heiminum, munu tengjast sem einn hópur í gegnum námið, vinna að einstaklings- og hópverkefnum og staðbundnum rannsóknarverkefnum. Líkt og í staðbundnu námi stendur nemendum til boða námsráðgjöf og stuðningur.  
Námið leggur góðan grunn að háskólanámi og störfum á sviðum sem tengjast umhverfismálum og nýtingu og verndun auðlinda.  Mikil alþjóðleg nýsköpun og gerjun er að eiga sér stað í þessum málum og bendir allt til þess að aukin þörf verði fyrir fólk með slíka þekkingu á komandi árum. 

Allar nánari upplýsingar er að finna á www.fjarmenntaskolinn.is  

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 








Þetta vefsvæði byggir á Eplica