Fréttir
Kiwanismenn gefa hjálma 2012
Kiwanismenn gefa hjálma 2012
Mynd 1 af 6
1 2 3 4 5 6

04.06.2012 Fréttir

Kiwanismenn gefa hjálma

Krakkarnir í 1 bekk Grunnskóla Hornafjarðar fengu óvænta heimsókn í skólann sl. föstudag, en þar voru á ferðinni Róbert, Olgeir, Haukur, Guðjón, Ögmundur og Stefán Brandur, allir félagar úr Kiwanisklúbbnum Ós.

Erindið sem þeir áttu við krakkana var að færa þeim vandaða reiðhjólahjálma sem eru gjöf frá Kiwanis, Eimskip og Flytjanda. Þegar krakkarnir voru búnir að setja upp hjálmana voru þau eins og gert er á hverju ári ítrekað við þau mikilvægi þess að vera með hjálm þegar farið væri út að hjóla.Krakkarnir samþykktu það samstundis og lofuðu að gleyma því ekki. Krakkar voru mjög ánægð með heimsóknina eins og sést á myndum sem myndatökumaður Miralem sendi til okkar.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 








Þetta vefsvæði byggir á Eplica