Fréttir
Sjómannadagurinn 2008
Sjómannadagurinn 2008
Úr myndasafni Mynd(@Kolla)

31.05.2012 Fréttir

Sjómannadagurinn 2012

Sjómannadagurinn er fyrsti sunnudagurinn í júní ár hvert, nema ef hvítasunnu ber upp á þann dag, þá er hann næsti sunnudagur þar á eftir.

Dagurinn var fyrst haldinn hátíðlegur þann 6. júní árið 1938 en frá upphafi 20. aldar tíðkaðist að halda sérstakar sjómannamessur í kirkjum áður en þilskipin héldu til veiða eftir vetrarlægi. Árið 1987 var dagurinn lögskipaður frídagur sjómanna.

Þessi hátíðisdagur verður í hávegum hafður hjá okkur um helgina aldrei sem fyrr. Mikill undirbúningur er búinn að vera í vetur en í sjómannadagsráði eru áhafnirnar á bátunum Guðmundi Sig.  og Ragnari.

Hátíðardagskrá verður með hefðbundnu sniði eins og kappróður, bryggjuleikir, sigling báta, dansleikur, messa og sjómenn verða heiðraðir.

Sjá nánar

Góða skemmtun,
Sjómannadagsráð 2012

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 








Þetta vefsvæði byggir á Eplica